Söfnun netfanga félagsmanna
Vakin er athygli á að verið er að safna saman netföngum félaga til að auðvelda samskipti milli skrifstofu og félagsmanna. Á síðunni undir Félagið/skrifstofa er reitur til að skrá nafn og netfang á lista yfir félagsmenn. Þegar hafa yfir 300 netföng verið skráð. Ef nafnið ykkar (eða netfangið) kemur upp þegar þið byrjið að slá inn, er það þegar á listanum og ekki þörf á að skrá það aftur. Annars dugar að senda nafn og netfang og þið eruð komin á lista sem notaður verður til að senda út tilkynningar til félagsmanna.
- Created on .