Við styðjum við stjórnendur á
Ánægt félagsfólk
Stjórnendafélag Austurlands er stéttarfélag fyrir þá sem eru í stjórnendastöðum í fyrirtækjum og einyrkja í sjálfstæðri atvinnustarfsemi á Austurlani. Félagið styður við faglegan og persónulegan vöxt leiðtoga á svæðinu.

Fríðindakerfi
Meðal fríðinda má nefna
Þjónustan okkar styrkir félaga með einstökum fríðindum og stuðning — allt hannað til að hjálpa þér að vaxa, slaka á og blómstra.
Orlofshús
á tvær íbúðir í Reykjavík og eina á Akureyri en félagsmenn hafa einnig aðgang að öllum 23 húsum STF.
Styrkir
Hér eru upplýsingar um alla þá styrki sem félagsmenn hafa aðgang að.
Sjúkrasjóður
Sjúkrasjóður okkar er gríðarsterkur og vel rekinn. Hér sérðu upplýsingar um sjúkrasjóðinn.
Starfsmenntun
Félagsmenn eiga rétt á menntastyrkjum úr menntasjóði fyrir starfstengdu námi. Hér eru frekari upplýsingar um menntasjóðinn.
Fréttir og tilkynningar

Um félagið
Hvað við gerum
Stjórnendafélag Austurlands er öflugt stéttarfélag sem helgar sig því að efla forystu og stjórnun á Austurlandi. Við veitum úrræði, stuðning og samfélag fyrir núverandi og framtíðar leiðtoga til að vaxa og dafna.
Okkar markmið
Að stuðla að öflugu tengslaneti fagfólks sem er skuldbundið framúrskarandi árangri, nýsköpun og sjálfbærri þróun á svæðinu.
Orlofshús
Taktu þér frí – þú átt það skilið
Stjórnendafélags Austurlands á þrjár íbúðir í Reykjavík og eina á Akureyri sem félagsmenn hafa aðgang að. Félagið er einnig aðili að orlofshúsakerfinu Frímann og hafa meðlimir aðgang að öllum orlofskostum STF sem eru í útleigu allan ársins hring. Húsin henta vel til að slappa af eða til að fara í skíðaferð yfir veturinn og eru af öllum stærðum og gerðum.

Fríðindi
Fríðindi fyrir félagsmenn
Við stöndum vörð um velferð félagsmanna með öflugri launavernd, aðgangi að sjúkrasjóði, heilsutengdum styrkjum og menntastyrkjum. Félagið styður félagsmenn í gegnum lífið – bæði í starfi og utan þess.
Launavernd
Félagsmenn okkar fá launavernd þegar þeir byrja að greiða til okkar. Það þýðir að verði félagsmaður fyrir vinnutapi tengdu sjúkdómum eða slysi á hann rétt á dagpeningagreiðslum úr sjúkrasjóði sem nemur 80% af meðaltalslaunum síðustu 12 mánaða (greiðum allt að 9 mánuði).
Menntastyrkir
Félagsmenn eiga rétt á menntastyrkjum úr menntasjóði fyrir starfstengt nám. Fyrirtæki geta einnig fengið niðurgreiðslu á námi tengdu starfi viðkomandi starfsmanns sem er greiðandi félagi hjá STF.
Heilsutengdir styrkir
Í boði eru ýmiskonar styrkir tengdir heilsu eins og kírópraktor, nuddi, sálfræðiþjónustu, gleraugnakaupum, fæðingastyrkir og fleira. Sjá nánar inn á mínum síðum.
Sjúkrasjóður
Sjúkrasjóður STF er vel rekinn og er gríðarsterkur. STF hefur ekki þurft að grípa til skerðinga á greiðslum eins og aðrir sjóðir. Sjúkrasjóðurinn á íbúð í Kópavogi sem er ætluð félagsmönnum sem þurfa að sækja sjúkrameðferð til Reykjavíkur. Hægt er að sækja ýmsa styrki vegna heilsubrests í sjúkrasjóð, þ.á.m heyrnartæki, augnaðgerðir, krabbameinsskoðanir og fleira. Sjá nánar inn á mínum síðum.