14. desember 2025
Minnum á Styrkina.
Kæri félagi
Við viljum minna á að sem félagi í Stjórnendafélagi Austurlands átt þú rétt á styrkjum úr sjóðum STF eftir 6 mánaða aðild. Þú getur geymt reikninga sem þú greiðir á þessum fyrstu sex mánuðum og sótt um styrk fyrir þeim þegar sjötta greiðslan hefur borist.
- Það er einfalt að sækja um styrki: Þú skannar reikninginn eða tekur mynd af honum og hengir við umsókn á félagavefnum.
- Mundu að skila umsókninni fyrir 20. hvers mánaðar til að fá styrkinn greiddan út í lok mánaðarins.
- Inn á Mínum Síðum á STA.is finnur þú nánari upplýsingar um hvaða styrkir standa til boða – það getur verið vel þess virði að kynna sér!
